Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Staða atvinnuleysis á Suðurnesjum
Föstudagur 15. október 2021 kl. 06:31

Staða atvinnuleysis á Suðurnesjum

Í byrjun ársins 2021 var atvinnuleysið á Suðurnesjum 26% á meðan heildaratvinnuleysi á landinu öllu var 12,8%. Á bak við töluna 26% voru 3.871 einstaklingar, fleiri konur voru atvinnulausar en karlar og aðeins fleiri atvinnuleitendur voru með erlent ríkisfang en íslenskt. Ríkisstjórnin setti á fót átakið „Hefjum störf“ og úthlutaði því verkefni til Vinnumálastofnunar í mars á þessu ári með það markmið að minnka atvinnuleysi á landinu í kjölfar COVID-19-faraldurins sem hafði neikvæð áhrifa á fjölda starfa í boði.

Staðan í ágústlok var þessi: 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

2.232 ráðningarstyrkir hafa verið gerðir

758 samningar voru gerðir á forsendum „Hefjum störf“-reglugerðarinnar

113 fóru í úrræðið „Nám er tækifæri“

Atvinnuleysi mældist 9,7% á Suðurnesjum í lok ágúst 2021 og á landinu 5,5%. Í lok september voru tölurnar 9,1% á Suðurnesjum og 5,1% á landinu öllu. Atvinnuleysi á Suðurnesjum hefur því lækkað um tæp 17% á átta mánuðum. Það er ljóst að samstillt átak Vinnumálastofnunar, atvinnurekanda, sveitarfélaga og félagasamtaka hefur skilað sér í minnkuðu atvinnuleysi og nú reynir á hverju fram vindur þegar átakið „Hefjum störf“ líður undir lok í árslok 2021. Enn verður opið fyrir umsóknir út þetta ár þannig að unnt er að ráða fleiri inn til 30. desember sem  halda þá vinnu út mitt ár 2022. Sótt er um í gegnum „mínar síður“ á heimasíðu stofnunarinnar.

Starfsfólk Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum hefur staðið sína vakt með sóma við afar krefjandi aðstæður og vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem hafa tekið þátt í verkefninu.

Saman erum við sterkari.

F. h Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum,
Hildur Jakobína Gísladóttir, forstöðumaður.